Breyting á skipulagi DrottningarbrautarreitsMynd: Akureyrarbær/akureyri.is

Breyting á skipulagi Drottningarbrautarreits

Breyting á deiliskipulagi Drottningarbrautarreits hefur verið samþykkt vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar syðst á reitnum. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.

Breytingin nær til Hafnarstrætis 80 og Austurbrúar 10-12. Í stað þess að gera ráð fyrir stóru hóteli á svæðinu er nú gert ráð fyrir 60-70 nýjum íbúðum auk íbúðahótels ásamt verslunar- og þjónustustarfsemi á neðstu hæð. Gert er ráð fyrir aukinni hámarkshæð húsa við Austurbrú miðað við fyrra skipulag og lagt til að fyrirhuguð viðbygging við Hafnarstræti 82 verði færð sunnan við húsið. Þannig myndast torg að norðanverðu sem tengi Hafnarstræti inn í nýju byggðina.

Breytingartillagan var auglýst 12. maí með athugasemdafresti til 23. júní. Umsagnir bárust frá Minjastofnun Íslands, Vegagerðinni og Norðurorku.

Markmiðið með breytingunum er að reiturinn verði til þess að styrkja stöðu miðbæjarins sem þungamiðju menningar, verslunar og þjónustu. Lögð er áhersla á að yfirbragð nýbygginga falli vel að núverandi byggð og bæjarmynd.

Skipulagsráð lagði til við bæjarstjórn í byrjun júlí að tillagan verði samþykkt með minniháttar breytingu á greinargerð gagnvart Hafnarstræti 82 um að hafa þurfi samráð við Minjastofnun Íslands um breytingar á húsinu. Bæjarráð samþykkti í kjölfarið deiliskipulagsbreytinguna með þeim fyrirvörum sem skipulagsráð lagði til.

Smelltu hér til að lesa heildarumfjöllun Akureyrarbæjar.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó