Drykkir Innbyrðis halda útgáfutónleika á Græna

Hljómsveitin Drykkir Innbyrðis heldur útgáfutónleika á morgun, laugardaginn 31. október, á Græna hattinum á Akureyri. Hljómsveitin gaf út samnefnda plötu í september. Platan mun koma út á vínyl á morgun í tilefni tónleikanna en hún hefur verið aðgengileg á streymiveitum síðan í september.
Drykkir innbyrðis var stofnuð á Akureyri í ársbyrjun 1986, tók þátt í Músíktilraunum í apríl það ár og hafnaði í öðru sæti. Hljómsveitin starfaði til ársins 1990, var áberandi þessum tíma en lagðist þá í dvala allt þar til að sú hugmynd kviknaði á seinasta ári að taka aftur upp þráðinn. Hljómsveitin hefur að undanförnu unnið að upptökum á plötu sem gefin verður út í haust og eru tónleikar þeirra á Græna Hattinum formlegir útgáfutóneikar plötunnar.
Meðlimir hljómsveitarinnar eru Rúnar Örn Friðriksson, söngvari, Viðar Garðarsson sem leikur á bassa, Haukur Eiríksson hljómborðsleikari, gítarleikarinn Eiríkur S. Jóhannsson og Ingvi Rafn Ingvason trommari.
Tengdar greinar
Uppfært: 30. október 2026










