![](http://www.kaffid.is/wp-content/uploads/2018/01/2A4DB5A7-FBD1-4D31-928E-B2AD49A39450-400x459.jpeg)
Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri Akureyrar
Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, mun ekki gefa kost á sér áfram og býður sig ekki fram í embættið í bæjarstjórnarkosningum. Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í dag.
Eiríkur hefur starfað sem bæjarstjóri frá árinu 2002, þá fyrstu tvö kjörtímabilin á Egilstöðum en í vor þegar kosið verður hefur hann setið jafn lengi sem bæjarstjóri Akureyrar.
Aðspurður í viðtali við Morgunblaðið segir Eiríkur “Þetta er orðinn ágætur tími, krefjandi starf en mjög skemmtilegt”
UMMÆLI