Kannt þú íslensku?

Til að fyrirbyggja allan misskilning er Já - Nei og Kannski réttu svörin.

Til að fyrirbyggja allan misskilning er Já – Nei og Kannski réttu íslensku svörin.

Það er ákveðið áhyggjuefni hjá þjóðinni að íslenska tungumálið muni ekki varðveitast. Með tilheyrandi enskuslettum og lélegri stafsetningu eru sífellt færri sem hafa vald á móðurtungunni. Kaffið tók saman nokkrar mjög algengar stafsetningar- og málfræðivillur sem verður hreinlega að útrýma.

Villur eru vinstra megin, rétt orð og setningar hægra megin feitletrað.

Það var sótt mig – Ég var sótt

Þúst – Þú veist

Einhvað – Eitthvað

Það var sagt mér – Mér var sagt

Víst að þetta gerðist – Fyrst að þetta gerðist

Mig hlakkar til – Ég hlakka til

Mér fynnst – Mér finnst

Lambið er frosnað – Lambið er frosið

Ég vill – Ég vil

Eitthver – Einhver

Það var spurt mig – Ég var spurð/ur

Ég var bara að spurjaÉg var bara að spyrja

Henni langar – Hana langar

Leita af – Leita að

Aldrey eða alldrey – Aldrei

Eiilega – Eiginlega

Talva – Tölva

Ástæðan af hverju – Ástæðan fyrir því

Það var lamið mig – Ég var lamin/nn

Fyrir bakvið mig – ha?Bakvið mig 

Hengur – Hangir

Soldið og doldið – Svolítið og dálítið

Það var bannað mér – Mér var bannað 

Það var ekki leyft okkur – Okkur var ekki leyft

UMMÆLI

Sambíó