MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Málmblásarakvintett í Akureyrarkirkju

Eftir Ingólfur Stefánsson·
image
kaffid.is

Þann 27. nóvember heldur North Atlantic Brass, alþjóðlega verðlaunaður málmblásarakvintett, tónleika í Akureyrarkirkju. Kvintettinn er skipaður fimm ungum og metnaðarfullum tónlistarmönnum frá Íslandi, Danmörku og Noregi sem hafa vakið athygli fyrir kraftmikinn flutning, samspil og fjölbreytta efnisskrá

North Atlantic Brass var stofnaður árið 2019. Hópurinn sem hefur aðsetur í Kaupmannahöfn, hefur komið fram Norðurlöndunum og víðar og vann meðal annars fyrstu verðlaun í Ryan Anthony Memorial keppninni í Los Angeles árið 2024.

Kvartettinn skipa íslendingarnir Gunnar Kristinn Óskarsson á trompet, Erling Róbert Eydal á horn og Gunnar Helgason á básúnu, ásamt danska trompetleikaranum Frederik Pehrsson og norska túbuleikaranum August Schieldrop.

Meðlimir kvintettsins starfa með nokkrum af fremstu sinfóníuhljómsveitum Norðurlandanna. Erling er meðal annars fastráðinn hornleikari í Sinfóníuhljómsveit danska ríkisútvarpsins, en Gunnar Kristinn er nú á reynslutíma sem leiðari trompetdeildar Sinfóníuhljómsveitarinnar í Árósum. August Schieldrop hefur einnig vakið athygli á alþjóðavettvangi sem túbueinleikari.

Fyrir hornleikarann Erling Róbert Eydal hafa tónleikarnir á Akureyri sérstaka og ánægjulega þýðingu þar sem báðir foreldrar hans eru frá Akureyri, þau Ásdís Eydal og Einar Erlingsson. Hann er barnabarn tónlistarmannsins Ingimars Eydal og á því ekki tónlistina langt að sækja. Erling lauk BA námi í hornleik frá Det kongelige musikkonservatorium í Kaupmannahöfn árið 2023 og er um þessar mundir að ljúka mastersnámi við Sibeliusar tónlistarakademíuna í Helsinki.

Á tónleikunum í Akureyrarkirkju verður boðið upp á fjölbreytta og skemmtilega efnisskrá þar sem íslensk og norræn þjóðlög fá að hljóma í nýjum útsetningum fyrir brasskvintett, ásamt klassískri tónlist, djassi og jólalögum.

Tónleikaupplýsingar

Staður: Akureyrarkirkja

Dagsetning: Föstudagur 27. nóvember 2026
Tími: 20:00

Miðaverð:

  • Almennt miðaverð: 3.000 kr.
  • Nemar, eldri borgarar og öryrkjar: 1.500 kr.

Tengdar greinar

Uppfært: 15. nóvember 2026