Fjögur ný rit komin út í Pastel ritröð á vegum Flóru

Mynd úr verki Hallgerðar Hallgrímsdóttur.

Fjögur ný rit eru komin út í Pastel ritröð á vegum menningarstaðarins Flóru á Akureyri.Verkin eru eftir fjóra ólíka höfunda úr skapandi geiranum og er hvert ritanna gefið út í aðeins eitt hundrað árituðum og númeruðum eintökum. Þau eru þessi:

Pastel 06 Bjarni Jónsson: Skýrsla um síðbúna rannsókn.
Pastel 07 Karólína Rós Ólafsdóttir: Hversdagar.
Pastel 08 Vilhjálmur B. Bragason: Ritsafn II. Fyrsta bók höfundar.
Pastel 09 Hallgerður Hallgrímsdóttir: Límkenndir dagar.

Verkin eru hönnuð af höfundum ásamt Júlíu Runólfsdóttur hjá Studio Holt, en Júlía setti ritin einnig til prentunar. Ritin eru prentuð hjá Ásprenti-Stíl á Akureyri.
Þessi fjögur nýju bætast við í hóp Pastel rita þeirra sem fyrir eru. Í júní í fyrra komu út fimm rit í þessarri sömu ritröð eftir þau Margréti H. Blöndal, Þórgunni Oddsdóttur, Kristínu Þóru Kjartansdóttur, Megas og Hlyn Hallsson.

Tvö útgáfuhóf verða haldin til að fagna komu þessarra fjögurra nýju rita.
Hið fyrra í Flóru á Akureyri fimmtudaginn 8. febrúar kl 17-18 og hið síðara í Mengi í Reykjavík laugardaginn 10. febrúar kl 15-16. Höfundar lesa úr eigin verkum og boðið verður uppá fisléttar vetrarlegar veitingar.
Allir áhugasamir eru velkomnir og er enginn aðgangseyrir að útgáfuhófunum. Öll þau sem eru sérlega áhugasöm um samtal þvert á íslenskar frásagnir, myndlist, bókverkagerð, hversdagsleika og ritlist hvött til að mæta og að hlýða á höfunda, ræða við þau og rýna í verkin.

Verk í Pastel ritröð eru til sölu í Safnbúð Listasafns Íslands í miðborg Reykjavíkur og í Flóru í miðbæ Akureyrar.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó