Fjölskylduleiðsögn í Listasafninu á Akureyri á morgun
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Sunnudaginn 18. október klukkan 11 til 12 mun Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, verkefnastjóri fræðslu og miðlunar hjá Listasafninu á Akrureyri, segja börnum og fullorðnum frá sýningunum Svartur blettur og 1/3 söngskemmtun, saumur, ló og þvottaleiðbeiningar. Að lokinni leiðsögn er gestum boðið að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum sýninganna.
Tilvalið tækifæri fyrir alla fjölskylduna til að fræðast um sýningarnar, skapa saman listaverk og eiga góða stund í Listasafninu. Öll velkomin. Aðgangur er ókeypis í boði Norðurorku sem styrkir sérstaklega safnkennslu og fræðslu fyrir börn og fullorðna í Listasafninu.
Tengdar greinar
Uppfært: 17. október 2026










