Prenthaus

Fjölskyldusigling á Eyjafirði í blíðskaparveðriUm borð í Vilhelm Þorsteinssyni EA 11 í gær

Fjölskyldusigling á Eyjafirði í blíðskaparveðri

Landherji, sem er Starfsmannafélag innan Samherja, efndi í gær til fjölskyldusiglingar á Eyjafirði með uppsjávarveiðiskipinu Vilhelm Þorsteinssyni EA 11.

Áhöfnin tók vel á móti hópnum, sýndi skipið og svaraði fjölmörgum spurningum gesta og kokkurinn sá um að grilla pylsur handa öllum.

Blíðskaparveður var fyrir norðan í gær, þannig að allar aðstæður til að njóta siglingarinnar í góðra vina hópi voru ákjósanlegar.

Alls tók siglingin um tvær klukkustundir, þannig að gestum gafst kostur á að skoða hið glæsilega skip og njóta veitinga um borð.

Skipstjórar framtíðarinnar hugsanlega um borð

Skipstjórarnir Birkir Hreinsson og Guðmundur Þ. Jónsson fengu eðlilega fjölmargar spurningar.

Skipstjórarnir Birkir Hreinsson og Guðmundur Þ. Jónsson. Ungur gestur situr í skipstjórastólum og fylgist með

„Það er alltaf gaman að taka á móti svona hópum og sýna alla tæknina um borð. Krakkarnir eru líka óhræddir við að bera fram spurningar og satt best að segja getur maður ekki svarað þeim öllum en maður gerir auðvitað sitt besta. Svo er alltaf vinsælt að setjast í skipstjórastólinn og hver veit nema skipstjórar framtíðarinnar hafi verið meðal gesta í þessum stutta en skemmtilega túr,“ segir Birkir Hreinsson skipstjóri.

Landherji þakkar áhöfn Vilhelms Þorsteinssonar EA 11 fyrir góðar móttökur.

Meðfylgjandi eru nokkrar myndir úr fjölskylduferðinni:

Frétt og myndir: Samherji.is


UMMÆLI

Sambíó