Fótboltamót og Græna Akureyri

Fótboltamót og Græna Akureyri

Akureyrarbær vill hvetja bæjarbúa og gesti bæjarins til að leggja sitt af mörkum svo bærinn geti staðið við að kalla sig umhverfisvænan bæ – Græna Akureyri. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar í dag.

Mikið er um að vera um helgina og vill Akureyrarbær því hvetja fólk til að nýta sér góða veðrið á Akureyri og hvað bærinn er lítill. „Við skulum því labba, taka strætó, nýta Hoppin og ef við verðum að fara á bíl þá að nýta ferðina vel með fullan bíl af fólki. Þannig fyllum við líka bæinn af mannlífi frekar en bílaumferð“, segir í tilkynningu Akureyrarbæjar.

Í gær hófst N1 mót KA og á morgun byrjar Pollamót Samskipa. Þúsundir gesta á öllum aldri verða því um allan bæ í vikunni að ferðast á milli staða og borða mat. Akureyrarbær vill því hvetja alla til að nota bílinn eins lítið og mögulegt er, ekki leggja upp á gangstéttum eða grænum svæðum.

„Við viljum hvetja þá sem standa að íþróttamótum og þá sem koma hingað til að keppa að virða það með góðri umgengi og umhverfisvænni hegðun. Leggjum bílnum, flokkum ruslið (sérstaklega lífrænt), minnkum matarsóun og hendum engu í klósettið“, segir í tilkynningunni að lokum.

Hér að neðan má finna ítarlegar upplýsingar og fróðleik um; sorpflokkun, hleðslustöðvar fyrir rafbíla og fleira tengt umhverfismálum Akureyrar.

https://www.akureyri.is/is/thjonusta/umhverfismal/graena-akureyri
https://www.visitakureyri.is/is/um-akureyri/graena-akureyri
https://www.vistorka.is

UMMÆLI

Sambíó