Frambjóðendur Framsóknarflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningar

Frambjóðendur Framsóknarflokksins til bæjarstjórnar fyrir kosningarnar 26. maí næstkomandi. Frá vinstri Sunna Hlín Jóhannesdóttir, Jóhannes Gunnar Bjarnason, Ingibjörg Isaksen, Guðmundur Baldvin Guðmundsson, Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir og Tryggvi Már Ingvarsson.

Framboðslisti Framsóknarflokksins á Akureyri fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 26. maí næstkomandi var samþykktur einróma á fulltrúaráðsfundi félagsins nú í morgun, laugardaginn 3. mars.

Fulltrúaráðið stillti upp listanum þar sem Guðmundur Baldvin Guðmundsson, bæjarfulltrúi og formaður bæjarráðs, skipar efsta sæti, Ingibjörg Isaksen, bæjarfulltrúi og framkvæmdastjóri er í öðru sæti, Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir búfjárerfðafræðingur í því þriðja, Tryggvi Már Ingvarsson landmælingaverkfræðingur skipar fjórða sæti listans, Sunna Hlín Jóhannesdóttir framhaldsskólakennari er í fimmta sæti og Jóhannes Gunnar Bjarnason, íþróttafræðingur og fyrrverandi bæjarfulltrúi, skipar sjötta sæti listans.

Við uppstillingu listans var meðal annars áhersla lögð á fjölbreytta menntun og reynslu frambjóðenda, ungt og hæfileikaríkt fólk í bland við reynslumikla frambjóðendur og jafnt hlutfall kynjanna. „Ég fer bjartsýnn inn í kosningabaráttuna og vongóður um góða niðurstöðu enda framboðslistinn einhuga og vel skipaður hópur,“ segirGuðmundur Baldvin Guðmundsson, oddviti listans.

„Ég hlakka til að vinna með þessum öfluga hópi frambjóðenda Framsóknarflokksins sem gengur samstíga inn í komandi kosningabaráttu,“ segir Ingibjörg Isaksen bæjarfulltrúi.

Á framboðslista Framsóknarflokksins fyrir bæjarstjórnakosningarnar eru 22 frambjóðendur, 11 konur og 11 karlar.

Framsóknarmenn fengu tvo bæjarfulltrúa í sveitarstjórnarkosningunum 2014, Guðmund Baldvin Guðmundsson og Ingibjörgu Isaksen.

UMMÆLI

Sambíó