Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi samþykktur

Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi samþykktur

Tillaga kjörnefndar að framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi var samþykkt á fundi kjördæmisráðs í Mývatnssveit um helgina. Sex efstu sæti listans eru skipuð af frambjóðendum í prófkjöri flokksins sem fram fór 29. maí síðastliðinn. Þetta kemur fram á vef Sjálfstæðisflokksins á Akureyri.

Efst­ur á list­an­um er Njáll Trausti Friðberts­son og í öðru sæti er Berg­lind Ósk Guðmunds­dótt­ir. Kristján Þór Júlíusson gaf ekki kost á sér í ný­af­stöðnu próf­kjöri flokks­ins í kjör­dæm­inu og skip­ar nú heiðurs­sæti list­ans.

Framboðslistinn í heild sinni:

1. Njáll Trausti Friðbertsson, alþingismaður, Akureyri
2. Berglind Ósk Guðmundsdóttir, lögfræðingur, Akureyri
3. Berglind Harpa Svavarsdóttir, bæjarfulltrúi og formaður byggðaráðs, Egilsstöðum
4. Ragnar Sigurðsson, bæjarfulltrúi, Reyðarfirði
5. Gunnar Hnefill Örlygsson, framkvæmdamaður, Húsavík
6. Gunnlaug Helga Ásgeirsdóttir, háskólanemi, Ólafsfirði
7. Hanna Sigríður Ásgeirsdóttir, sjálfstæður atvinnurekandi, Siglufirði
8. Ketill Sigurður Jóelsson, verkefnastjóri, Akureyri
9. Ásta Arnbjörg Pétursdóttir, bóndi og fjölskyldufræðingur, Eyjafjarðarsveit
10. Einar Freyr Guðmundsson, menntaskólanemi, Egilsstöðum
11. Helgi Ólafsson, rafvirkjameistari, Raufarhöfn
12. Freydís Anna Ingvarsdóttir, sjúkraliði og bóndi, Aðaldal
13. Róbert Ingi Tómasson, framleiðslustjóri, Seyðisfirði
14. Guðný Margrét Bjarnadóttir, kennari og skíðaþjálfari, Eskifirði
15. Jens Garðar Helgason, framkvæmdastjóri, Eskifirði
16. Kristín Halldórsdóttir, rekstrarstjóri, Akureyri
17. Stefán Magnússon, bóndi, Hörgársveit
18. Guðrún Ása Sigurðardóttir, leikskólastarfsmaður, Fáskrúðsfirði
19. Arnbjörg Sveinsdóttir, fyrrv. alþingismaður, Seyðisfirði
20. Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Akureyri

UMMÆLI