Framboðslisti Sósíalistaflokksins í NorðausturkjördæmiMynd: sosialistaflokkurinn.is

Framboðslisti Sósíalistaflokksins í Norðausturkjördæmi

Haraldur Ingi Haraldsson, verkefnastjóri Listasafnsins á Akureyri, skipar efsta sæti á lista Sósíalistaflokksins í Norðausturkjördæmi. Margrét Pétursdóttir er í öðru sæti og Guðrún Þórsdóttir í þriðja sæti.

Listanum var stillt upp af slembivöldum hópi meðal félaga flokksins sem unnið hefur hörðum höndum að því að endurspegla sem skýrast vilja grasrótar flokksins. Þetta kemur fram í tilkynningu Sósíalistaflokksins.

Í tilkynningunni segir að oddvitinn Haraldur Ingi hafi víðtæka reynslu af atvinnulífinu og hafi starfað sem kennari, leiðsögumaður, við kræklingarækt, við safnastörf og fleira. Einnig hefur hann lagt stund á listir og sífellt sjálfsnám um vinstri sinnuð stjórnmál, sagnfræði og hagfræði.

„Það er kominn tími á róttæka vinstristefnu sem hefur skýra framtíðarsýn og hafnar stöðugum málamiðlunum til hægri. Málamiðlanirnar hafa engu skilað nema afturför, síauknum ójöfnuði og auðsöfnun lítils hluta þjóðarinnar. Skattahækkanir á bótaþega og almennt launafólk, sligandi húsnæðis- og leigumarkaður og níðþungur fjármagnskostnaður og fjármálakerfi leggja þungar byrðar á þjóðina en soga hins vegar gríðarlegan arð til fjármagnseigenda og stórfyrirtækja,“ segir Haraldur Ingi Haraldsson.

Margrét Pétursdóttir er sósíaliskur femínisti og róttækur aktívisti í umhverfismálum. Haft er eftir Margréti að hún vilji breytingar á samfélaginu. „Breytingar sem ég hélt að við fengjum eftir Búsáhaldabyltinguna en urðu ekki. Þar má telja nýja stjórnarskrá sem dæmi. Ég hef trú á þessu framboði Sósíalistaflokksins sem hefur fengið að gerjast í nokkur ár og ég tel að það sé farsælt fyrir okkur öll að teyma þetta þjóðfélag úr nýfrjálshyggjunni yfir í sósíalismann,“ segir Margrét.

Listi Sósíalistaflokks Íslands í Norðausturkjördæmi:

  1. Haraldur Ingi Haraldsson, verkefnastjóri
  2. Margrét Pétursdóttir, verkakona
  3. Guðrún Þórsdóttir, menningarstjóri og ráðgjafi
  4. Þorsteinn Bergsson, bóndi
  5. Unnur María Máney Bergsveinsdóttir, sirkuslistakona og sagnfræðingur
  6. Auður Traustadóttir, sjúkraliði
  7. Rúnar Freyr Júlíusson, námsmaður
  8. Karolina Sigurðardóttir, verkakona
  9. Bergrún Andradóttir, námsmaður
  10. Brynja Siguróladóttir, öryrki
  11. Stefán L. Rögnvaldsson, bóndi og raunsæisskáld
  12. Kolbeinn Agnarsson, sjómaður
  13. Halldóra Hafdísardóttir, myndlistarmaður
  14. Arinbjörn Árnason, fv. bóndi og bifreiðarstjóri
  15. Ari Sigurjónsson, sjómaður
  16. Árni Daníel Júlíusson, sagnfræðingur
  17. Michal Polacek, lögfræðingur
  18. Katrín María Ipaz, þjónn
  19. Skúli Skúlason, leiðbeinandi
  20. Jóhann Axelsson, prófesssor emeritus

UMMÆLI