MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Fríða Karlsdóttir opnar sýningu á Leyni

Eftir María Hjelm·
frida_portrettnr1mykri
kaffid.is

Fríða Karlsdóttir opnar sýninguna Memento mori á Leyni í göngugötunni, fimmtudaginn 30. júlí klukkan 20. Sýningin stendur yfir í tvær vikur.

Fríða Karlsdóttir (f. 1994) útskrifaðist af myndlistarbraut Gerrit Rietveld Academie í Amsterdam í Hollandi 2020 og býr nú og starfar á Akureyri.

Fríða vinnur með sögusagnir í gegnum blandaða miðla, vídeóverk, skúlptúra, textaverk og ýmiss konar handverk. Verk hennar líkjast oft náttúrulegum fyrirbærum og innihalda sterkar táknmyndir, þannig dramatíserar hún hversdagsleikann og segir frá einlægum upplifunum.

Fríða hefur sýnt bæði hér á landi og erlendis, má þar nefna einkasýningu hennar Ekkert eftir nema mýktin í Listasafninu á Akureyri, Þú veist hvað þau segja um… í Mjólkurbúðinni og Murky Waters á Sigurhæðum. Hún hefur komið að uppsetningu og skipulagningu fjölmargra menningarviðburða eins og Boreal Screendance Festival, Salon de Refuses í Deiglunni, Akureyrarvöku og Barnamenningarhátíð auk fjölbreyttra viðburða í Kaktus sýningarými.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026