Fuglaskoðun í Kjarnaskógi á Degi íslenskrar náttúru


Dagur íslenskrar náttúru er laugardaginn 16. september og í tilefni af honum ætla Eyþór Ingi Jónsson, Sverrir Thorstensen og Fuglavernd að bjóða fólki í smáfuglaskoðunarferð um Kjarnaskóg. Tilgangurinn með ferðinni er að benda fólki á góða staði í skóginum, leyfa fólki að sjá og heyra í þeim fuglum sem þar má finna. Sérstök áhersla verður lögð á glókollinn, en hann er nokkuð algengur í Kjarnaskógi, en erfitt getur verið að sjá hann. Glókollurinn er minnsti fugl Evrópu, aðeins um 5 grömm að þyngd.

Sverrir mun sýna fólki hvernig hann ber sig að við fuglamerkingar og hver veit nema hann nái einhverju í netin sín og fá þá þátttakendur að komast í algjört návígi við fuglana.

Gott er að hafa meðferðis sjónauka, en það er þó ekki nauðsynlegt. Áhugafólk um fuglaljósmyndun er sérstaklega boðið velkomið og mun Eyþór ráðleggja fólki sé þess óskað.

Gangan ætti að vera auðveld og hægt verður farið yfir. Hún hentar vel fyrir alla fjölskylduna. Gönguvegalengdin gæti verið ca 2-3 km (fer eftir staðsetningu fuglanna) og mun gangan taka c.a. 2 klst.
Lagt verður af stað frá aðalbílastæði Kjarnaskógs (við húsið) kl. 14.

Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir, sjá skráningu.
Gott er að hafa með:
– Sjónauka
– Myndavél
– Góða skó
Huggulegt getur verið að hafa meðferðis kaffibrúsa eða smá nesti, þótt ferðin verði ekki löng.

Viðburðinn má nálgast hér. 


UMMÆLI