Fyrsta íslenska konan til að taka 200 kíló í hnébeygju án útbúnaðar – Myndband

screen-shot-2016-10-24-at-20-21-36
Sögulegur atburður átti sér stað hjá Kraftlyftingafélagi Akureyrar nú í kvöld þegar ung og efnileg lyftingakona gerði sér lítið fyrir og lyfti 200 kílóum í hnébeyju, fyrst kvenna á Íslandi.

Þessi magnaða íþróttakona heitir Sóley Margrét Jónsdóttir en hún er fædd árið 2001 sem þýðir að hún er ennþá í grunnskóla. Sóley sem æfir og keppir fyrir Kraftlyftingafélag Akureyrar undirbýr sig nú að kappi fyrir bikarmótið í kraftlyftingum sem fram fer eftir 12 daga.

Hér að neðan má sjá myndband af þessu magnaða afreki

UMMÆLI

Sambíó