Fyrsta sveinspróf í matreiðslu utan höfuðborgarsvæðisinsSveinar nýbúnir að standa sveinspróf ásamt framreiðslunemum frá Rub23 og Strikinu sem þjónuðu til borðs á kvöldverðinum.

Fyrsta sveinspróf í matreiðslu utan höfuðborgarsvæðisins

Það voru sannarlega merk tímamót í gær í sögu Verkmenntaskólans á Akureyri og um leið í matreiðslunámi á Íslandi er tíu nemendur luku sveinsprófi í matreiðslu. Þetta er í fyrsta skipti sem sveinspróf er haldið í matreiðslu í VMA og utan höfuðborgarsvæðisins. Nemendurnir tíu sem þreyttu sveinsprófið hafa allir verið í þriðja bekk í matreiðslu á þessari önn og staðið sig mjög vel. Allir stóðust þeir sveinsprófið. Þetta kemur fram í frétt á vef Verkmenntaskólans á Akureyri.

Marína Sigurgeirsdóttir, brautarstjóri matvælabrautar VMA, segir að sveinsprófið hafi gengið mjög vel og fulltrúar sveinsprófsnefndar í matreiðslu, sem allir komu frá höfuðborgarsvæðinu, hafi lofað mjög þá aðstöðu sem skólinn hafi til menntunar matreiðslu- og framreiðslufólks. Hún sagðist lengi hafa beðið eftir þessum degi, enda hafi verið markvisst unnið að þessu í mörg undanfarin ár.

Í sveinsprófi í matreiðslu er matreitt samkvæmt sex rétta matseðli sem sveinsprófsnefnd gefur út. Sveinsprófið tók tvo daga, það hófst sl. þriðjudag og var frá kl. 11 til 19 þann dag og í gærmorgun var aftur hafist handa kl. 11 og prófinu lauk í gærkvöld með glæsilegum málsverði þar sem gestir nutu þeirra dýrindis krása sem sveinsprófsnemarnir töfruðu fram. Nemar í framreiðslu sem starfa á tveimur veitingastöðum á Akureyri, annars vegar Rub 23 og hins vegar Strikinu, önnuðust framreiðslu undir stjórn Trausta Víglundssonar, formanns sveinsprófsnefndar í framreiðslu, og Eddu Bjarkar Kristinsdóttur, kennara í framreiðslu við matvælabraut VMA. Sigmar Örn Ingólfsson, fulltrúi í sveinsprófsnefnd í framreiðslu, var einnig viðstaddur.

Í sveinsprófsnefnd í matreiðslu, sem dæmdi frammistöðu nemendanna, eru Friðrik Sigurðsson formaður og með honum Jakob Magnússon og Bjarki Hilmarsson.

Marína Sigurgeirsdóttir segir að sveinsprófið hafi verið mikil og ánægjuleg tímamót, enda hafi matreiðslunemar nú í fyrsta skipti verið fullmenntaðir á landsbyggðinni. Mikil þörf séu sé á bæði matreiðslumönnum og þjónum til starfa í ört vaxandi veitingageira og því sé afar mikilvægt að hafa loks getað stigið þetta skref. Í síðustu viku þreyttu þrjátíu nemendur sveinspróf í matreiðslu í Menntaskólanum í Kópavogi og nú tíu á Akureyri. Aldrei áður hafa jafn margir matreiðslunemar lokið sveinsprófi í matreiðslu hér á landi í einum og sama mánuðinum.

Með því að ýta HÉR má skoða fleiri myndir úr sveinsprófinu.

Mynd og frétt af vef VMA. 

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó