MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika

Eftir Ingólfur Stefánsson·
8M1A3238-1600×1067.jpg
kaffid.is

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika.

Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Sunnudaginn 1. nóvember verður svo tvöföld tónlistarveisla þegar haldið verður upp á 90 ára afmæli tónlistarmannsins Ingimars Eydal með tvennum tónleikum. Fyrri tónleikarnir hefjast klukkan 16:00 og þeir síðari klukkan 20:00.

Það er nánast uppselt á báða afmælistónleikana og örfá sæti eru eftir á tónleika Nýdanskrar. Samanlagt hafa nú selst hátt í 1.500 miðar á viðburðina þrjá.

„Þessi mikla aðsókn undirstrikar þann öfluga áhuga sem er á lifandi tónlist á Akureyri og mikilvægi Hofs sem eins helsta tónleikastaðar landsins. Það er því ljóst að fram undan er einstaklega lífleg tónlistarhelgi í Hofi þar sem gestir fá að njóta íslenskrar tónlistarsögu í flutningi frábærra listamanna,“ segir í tilkynningu Menningarfélags Akureyrar.

Tengdar greinar

Uppfært: 29. október 2026