Gregg Ryder hættir með Þór

Gregg Ryder hættir með Þór

Gregg Ryder þjálfari Þórs og knattspyrnudeild félagsins hafa komist að samkomulagi um að Gregg láti af störfum sem þjálfari liðsins eftir leikinn gegn Magna á morgun.
Gregg tók við liðinu eftir síðasta tímabil, af Lárusi Orra Sigurðssyni, og náði því aðeins einu tímabili með liðið. Liðið fór vel af stað í byrjun sumars en seinni part sumars hefur verulega hallað undan fæti og hefur liðinu aðeins tekist að vinna einn af síðustu átta leikjum liðsins. Þar á meðal kom stærsta tap félagsins í sögunni á Þórsvelli gegn Fjölni á dögunum, 7-1 tap.

Yfirlýsing Þórs:
Knattspyrnudeild Þórs og Gregg Ryder hafa komist að samkomulagi um að Gregg láti af störfum sem þjálfari meistaraflokks Þórs eftir tímabilið. Þór þakkar Gregg fyrir sín störf í þágu Þórs og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni.”

Yfirlýsing frá Gregg:
Liðinu gekk mjög vel stærstan hluta sumarsins en nokkrir samverkandi þættir urðu þess valdandi að okkur tókst ekki að gera atlögu að sæti í efstu deild á lokakaflanum. Þrátt fyrir að hafa ekki náð markmiðum okkar um úrvalsdeildarsæti hefur okkur tekist að byggja til framtíðar. Margir ungir leikmenn félagsins hafa öðlast dýrmæta reynslu á vellinum og hafa samhliða tekið miklum framförum. Framtíðin er björt fyrir Þór og ég óska félaginu alls hins besta á komandi árum. Ég hef notið hverrar stundar á Akureyri og vil nota tækifærið og þakka öllum sem ég hef kynnst hér fyrir skemmtilegt og gefandi samstarf. Ég vona að ég fái tækifæri til að starfa áfram við íslenska knattspyrnu. DFK“ 

Sambíó

UMMÆLI