Guðjón kosinn formaður Félags framhaldsskólakennaraGuðjón Hreinn Hauksson.

Guðjón kosinn formaður Félags framhaldsskólakennara

Guðjón Hreinn Hauksson, kennari við Menntaskólann á Akureyri, bar sigur úr býtum í formannskjöri Félags framhaldsskólakennara. Tveir voru í framboði; Guðjón Hreinn Hauksson, starfandi formaður FF og framhaldsskólakennari við MA, og Gunnar Hólmsteinn Ársælsson, framhaldsskólakennari í FG. Guðjón hlaut 660 atkvæði eða 74,83%. Gunnar hlaut 181 atkvæði eða 20,52%. Alls greiddu 882 atkvæði eða um 50% þeirra sem voru á kjörskrá. Auðir seðlar voru 41 eða 4,65%.

Guðjón Hreinn Hauksson er því réttkjörinn formaður Félags framhaldsskólakennara fram að næsta reglulega aðalfundi FF sem verður haldinn árið 2022. 

Formannskjörið var rafrænt og fór fram dagana 17. til 23. september 2019. 

UMMÆLI

Sambíó