Guðni Arnar ráðinn til Sjúkrahússins á Akureyri

Guðni Arnar ráðinn til Sjúkrahússins á Akureyri

Guðni Arnar Guðnason innkirtlalæknir hefur verið ráðinn til Sjúkrahússins á Akureyri, SAk, frá 1. september síðastliðnum. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu SAk í dag.

Þar segir að Guðni muni starfa á göngudeild efnaskipta- og innkirtalækninga í tvo daga aðra hvora viku og einnig sinna fjarþjónustu sem og ráðgjöf til lækna á SAk og HSN.

„Innkirtlateymi SAk hefur starfað án viðveru innkirtlalæknis nú um nokkurt skeið og því ánægjulegt að geta boðið aftur upp á þá þjónustu. Þjónustu göngudeildarinnar spannar vítt svið þar sem meðal annars fer fram greining, meðferð og eftirlit fólks með sykursýki, algenga og sjaldgæfari sjúkdóma í innkirtlum eins og til dæmis í skjaldkirtli, nýrnahettum og heiladingli auk beinþynningar og ýmissa annarra efnaskiptavandamála. Tekið er á móti tilvísunum frá læknum,“ segir í tilkynningu SAk.

COMMENTS