Hættustigi vegna vatnavaxta aflétt á Norðurlandi eystra

Hættustigi vegna vatnavaxta aflétt á Norðurlandi eystra

Ríkislögreglustjóri í samráði við Lögreglustjórann á Norðurlandi eystra hefur ákveðið að aflétta hættustigi vegna vegna leysinga og vatnavaxta í ám og vötnum á Norðurlandi eystra.

Gríðarlegir vatnavextir voru á Norðurlandi í síðustu viku, en það er ekki lengur raunin og því er óhætt að aflétta hættustiginu. Unnið er að lagfæringum á þeim vegum og brúm sem skemmdust.

Hættustig var sett á 1. júlí síðastliðinn vegna mikilla vatnavaxta í ám og vötnum á svæðinu. Þessar miklu leysingar komu til vegna mikils lofthita.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó