Hafdís er Hjólreiðakona ársins 2025

Hafdís er Hjólreiðakona ársins 2025

Hafdís Sigurðardóttir úr HFA var í síðustu viku valin Hjólreiðakona ársins 2025 á lokahófi Hjólreiðasambands Íslands. Þetta er fjórða árið í röð sem að Hafdís hlýtur viðurkenninguna Hjólreiðakona ársins.

„Tímabilið var viðburðaríkt og skemmtilegt. Það er frábært að vera hluti af hjólreiða samfélaginu og keppa við hóp af ótrúlega sterkum stelpum. Ég er ótrúlega heppin með allt fólkið mitt sem hefur óbilandi trú á mér og öll sem ég tek mér fyrir hendur, þið eruð best. Það er ómetanlegt að fá aðstoð og stuðning frá fyrirtækjum og gera þetta keppnisstand mögulegt,“ skrifar Hafdís á samfélagsmiðlum.

Hlynur Snær Elmarsson úr HFA var valinn efnilegasti hjólreiðamaður ársins 2025 á lokahófinu.

COMMENTS