Halla Bergþóra ráðin lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisinsHalla Bergþóra Björnsdóttir. Mynd/Þorgeir Baldursson.

Halla Bergþóra ráðin lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins

Halla Bergþóra Björnsdóttir hefur verið skipuð lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu frá 11. maí. Halla Bergþóra er lögfræðingur að mennt og hefur gegnt embætti lögreglustjórans á Norðurlandi eystra frá árinu 2015. Þar áður gegndi hún embætti sýslumanns á Akranesi frá árinu 2009.

Hún var metin hæfust umsækjenda af hæfnisnefnd, valin úr hópi þriggja umsækjenda til að gegna starfinu. Alls sóttu fjórir um embættið en Jón HB Snorrason dró umsókn sína til baka.

UMMÆLI

Sambíó