Hátíðardagskrá Akureyrarbæjar á 17. júní með nokkuð hefðbundnu sniði

Hátíðardagskrá Akureyrarbæjar á 17. júní með nokkuð hefðbundnu sniði

Hátíðarhöld á þjóðhátíðardaginn verða með nokkuð hefðbundnu sniði á Akureyri. Nú miðast samkomutakmarkanir við 300 manns og því varð að aflýsa fjölskylduskemmtun á MA-túninu en í staðinn mun dagskráin í Lystigarðinum vera lengri með fleiri uppákomum. Til að fyrirbyggja hópmyndanir og auðvelda fólki að virða fjarlægðarmörk verður samkomuflötinni við skrúðhúsið skipt í tvö hólf frá vestri til austurs.

Fréttatilkynningu Akureyrarbæjar um dagskrána má sjá í heild sinni hér að neðan: 

Blómabíll mun keyra um bæinn og verður á ferðinni undir hádegi með þjóðhátíðarkveðjum til bæjarbúa. Klukkan 12.45 leggur skrúðganga Lúðrasveitar Akureyrar og Skátafélagsins Klakks af stað frá Hamarskotstúni, suður Byggðaveg að Álfabyggð og þaðan fram hjá Hjúkrunarheimilinu Hlíð niður á Þórunnarstræti og inn í Lystigarðinn.

Klukkan 13.15 mun hátíðardagskrá hefjast í Lystigarðinum. Lúðrasveit Akureyrar undir stjórn Sóleyjar Bjarkar Einarsdóttur leikur, skátar hylla fánann og séra Guðrún Eggerts Þórudóttir flytur hugvekju. Sönghópur skipaður fulltrúum kóra á Eyjafjarðarsvæðinu syngur þjóðsönginn og félagar úr Yngri og Eldri barnakór Akureyrarkirkju syngja Sálminn um fuglinn eftir Olgu Guðrúnu Árnadóttur. Stjórnandi er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir. Fjallkonan Inda Björk Gunnarsdóttur mun síðan flytja ávarp og Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður bæjarráðs segir nokkur orð.

Þar á eftir munu nýstúdentar marsera um garðinn, Ronja ræningjadóttir stígur á stokk og loks verður boðið upp á tónleika með Tríói Akureyrar.

Klukkan 15.00 býður áhöfnin á eikarbátnum Húna II til siglingar um Pollinn en hámarksfjöldi gesta um borð verður 70 manns. Fyrstur kemur, fyrstur fær.

UMMÆLI