Prenthaus

Hildigunnur nýr forstjóri Sjúkra­hússins á Akur­eyriMynd: Stjórnarráðið

Hildigunnur nýr forstjóri Sjúkra­hússins á Akur­eyri

Heilbrigðisráðherra hefur skipað Hildigunni Svavarsdóttur í starf forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) til fimm ára. Hildigunnur hefur verið framkvæmdastjóri hjúkrunar á sjúkrahúsinu og klínískur framkvæmdastjóri á bráða- og þróunarsviði frá 2012.

Embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri var auglýst þann 25. júní síðastliðinn og voru sjö umsækjendur um embættið. Í framhaldi af álitsgerðar hæfnisnefndar ákvað ráðherra að skipa Hildigunni Svavarsdóttur í embættið til fimm ára. Þetta kemur fram í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu.

Í tilkynningu ráðuneytisins segir að Hildigunnur hafi yfirgripsmikla þekkingu og reynslu á sviði heilbrigðisþjónustu ásamt víðtækri reynslu á sviði stjórnunar.

Hildigunnur hefur verið framkvæmdastjóri hjúkrunar á SAk frá árinu 2012. Hún var forstöðumaður deildar kennslu, vísinda og gæða á SAk um tíu ára skeið, sem framkvæmdastjóri og forstöðumaður tók Hildigunnur mjög virkan þátt í uppbyggingu gæðastarfs sem síðan leiddi til alþjóðlegrar gæðavottunar á SAk. Þá hefur hún verið virk í stefnumótun bæði innan hjúkrunar og fyrir SAk í heild sinni. Hún var skólastjóri Sjúkraflutningaskólans um í tíu ár og átti ríkan þátt í því að nám sjúkraflutningamanna fluttist á landsbyggðina.

Hildigunnur starfaði sem lektor við Háskólann á Akureyri (HA) í fimmtán ár og er nú með stöðu klínísks lektors við heilbrigðisvísindastofnun HA. Hún hefur setið í stjórn Endurlífgunarráðs Evrópu í 15 ár og í framkvæmdastjórn ráðsins í fimm ár. Þá var hún í forsvari fyrir hóp leiðbeinenda sem fór á vegum Rauða kross Íslands þrisvar sinnum til Palestínu til að byggja upp þekkingu og þjálfun í endurlífgun í samstarfi við palestínska Rauða Hálfmánann.

Hildigunnur hefur BS próf í hjúkrunarfræði  frá Háskólanum á Akureyri og MS próf í heilbrigðisvísindum frá Glasgow Caledonian háskóla. Hún hefur því háskólamenntun ásamt framhaldsmenntun sem nýtist mjög vel í starfi. Þá hefur hún lagt stund á nám í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands.

UMMÆLI