KIA

Hjúkrunarheimilið Lögmannshlíð vann Byggingarlistaverðlaunin 2017

Mynd: akureyri.is

Í ár var það hjúkrunarheimilið Lögmannshlíð sem hlaut Byggingarlistaverðlaun Akureyrar árið 2017, en verðlaunin hafa verið veitt árlega síðastliðin 17 ár. Að þessu sinni voru skoðaðar byggingar með tilliti til þeirra starfsemi sem fram fer í húsnæðinu og þótti Öldrunarheimilið bera af í þessum flokki, samkvæmt niðurstöðu faghóps og stjórn Akureyrarstofu.

Mynd: akureyri.is

Húsið var tekið í notkun 1. október 2012 en það var Fanney Hauksdóttir arkitekt, sem hannaði húsið, Akureyrarbær var byggjandi hússins en fyrirtækið SS byggir sá um framkvæmdina.
Lögmannshlíð samanstendur af fimm húsum, hvert með 9 íbúðum. Í hverju húsi eru sameiginleg rými, eldhús, borðstofa og stofa ásamt verönd við hverja íbúð. Húsin fimm eru sjálfstæðar einingar þótt ekki komi það fram í útliti þeirra eða formi og eru þau tengd saman með miðlægum samkomusal og annarri sameiginlegri aðstöðu. Húsið er á einni hæð sem stuðlar að virkum samskiptum og útiveru sem stigar og lyftur gætu annars unnið gegn.

Á heimasíðu Akureyrarbæjar er farið ítarlega í starfsemi Öldrunarheimilisins og sjónarmið þess. 
Á Lögmannshlíð, sem og í öðrum húsakynnum Öldrunarheimila Akureyrar, er starfað samkvæmt Eden hugmyndafræðinni, höfundur hennar er bandaríski læknirinn William Thomas. Hann komst að því með rannsóknum sínum að einmannaleiki, vanmáttarkennd og leiði eru aðalástæður vanlíðunar hjá íbúum öldrunarheimila. Með Eden hugmyndafræðinni er unnið gegn þessum þáttum til þess að auka lífsgæði íbúanna. Það skiptir öllu máli að hver og einn eigi sér líf sem viðkomandi telur vert að lifa og að lífið sé metið gott. Virðing fyrir fólki og umhyggja eru lykilatriði þeirra hugmynda sem liggja á bak við hönnun öldrunarheimilisins Lögmannshlíðar.

Heimili og umgjörð þess er eitt af lykilatriðum vellíðunar hvers og eins og skiptir fagurfræðileg mótun þar máli. Útfærsla Lögmannshlíðar og innra skipulag styður einstaklega vel við sett markmið um eiginleika hjúkrunarheimilisins. Í hverju húsi er sérstakur heimilisbragur sem stuðlar að samskiptum og gagnkvæmum stuðningi. Sameiginleg rými eru vel mótuð og mynda fallega umgjörð um daglegt líf íbúanna.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó