Hlíðarfjallsskýrslan í forgangi hjá Rannsóknarnefnd samgönguslysa

Mýflug

Mýflug

Flugslysasvið Rannsóknarnefndar samgönguslysa stefnir að því að gefa út skýrslu um banaslysið í Hlíðarfjalli núna í vetur en slysið sem varð um verslunarmannahelgina árið 2013.

Í slysinu  fórust flugstjóri og sjúkraflutningamaður þegar þeir voru að koma úr sjúkraflugi á vegum Mýflugs. Aðstoðarflugmaður komst lífs af en slasaðist.

„Þetta slys hefur verið í forgangi hjá okkur,“ segir Þorkell Ágústsson hjá RNSA í samtali við Fréttablaðið í dag.

Þorkell segist ekki geta gefið upp neina ákveðna dagsetningu hvenær ferlinu lýkur en það sé vonandi áður en vorar.

Nánar er greint frá málinu í Fréttablaðinu í dag.


UMMÆLI

Sambíó