Hrekkjavökutónleikar Blásarasveita TónAk

Hinir árlegu og sívinsælu Hrekkjavökutónleikar Blásarasveita Tónlistarskólans á Akureyri verða haldnir miðvikudaginn 28.október klukkan 18:00 í Hamraborg, Hofi. Eins og áður er ókeypis aðgangur og öll velkomin meðan húsrúm leyfir.
„Fyrir okkur í blásarasveitum Tónlistarskólans er þetta hápunktur ársins, ógurlega skemmtileg tónlist, búningar, skreytingar og hrekkjavökustemming. Það er hrikaleg eftirvænting hjá hljóðfæraleikurunum að spila fyrir fullan sal af hrekkjavökuaðdáendum. Svo að sjálfsögðu getum við ekki beðið eftir að heyra nýju hrekkjavökusöguna í flutningi Urðar Bergsdóttur,“ segir í tilkynningu.
„Við leggjum mikinn metnað í að skapa drungalega stemmingu og erum allt árið að föndra og útbúa skreytingar fyrir tónleikana þannig að það er alltaf eitthvað nýtt. Við hvetjum líka áhorfendur til að mæta í sínu hræðilegasta pússi.“
Það má gera ráð fyrir húsfylli þannig að fólk er hvatt til þess að mæta snemma og tryggja sér sætispláss.
Tengdar greinar
Uppfært: 29. október 2026










