Hugmyndasamkeppni um nýtingu svæðis fyrir ofan Hrafnagil

Svæðið sem um ræðir.

Sveitarfélagið Eyjafjarðarsveit festi nýlega kaup á skóglendi ofan Hrafnagilshverfis, en áður tilheyrði aðeins lítill hluti þess sveitarfélaginu. Á þessu svæði er m.a. Aldísarlundur sem um árabil hefur nýst skólasamfélaginu afar vel. Með stækkun þessa svæðis, ofan Aldísarlundar, opnast ýmsir möguleikar til útivistar, kennslu og leikja bæði fyrir skólasamfélagið og íbúa. Sveitarstjórn hefur áhuga á að útfæra hugmyndir og ráðast í framkvæmdir á svæðinu sem væru til þess fallnar að auka samveru og útivist íbúanna.

Sveitarstjórn leitar því til íbúa sveitarfélagsins eftir hugmyndum um hvernig best væri að nýta svæðið. Sveitarstjórn sér þetta fyrir sér sem tækifæri fyrir einstaklinga, skólana og félög í sveitinni að vinna saman að hugmyndum um svæðið.

Hugmyndir sendist á netfangið esveit@esveit.is. Skilafrestur er til mánudagsins 6. nóvember.

Sambíó

UMMÆLI