Hún pabbi – ,,Hún var ekki Ágúst Már, heldur Anna Margrét“

Mynd: mak.is

Sýningin Hún Pabbi er á leiðinni norður helgina 9. – 10. september. Sýningin er einlægur einleikur um óvanalegt samband föður og sonar, sem hefur fengið hreint út sagt frábæra dóma. Í lýsingu verksins segir:

Innst inni vissi Hannes að eitthvað var ekki eins og það átti að vera. Dag einn breyttist allt. Pabbi hans lét sig einfaldlega hverfa og varð Anna Margrét Grétarsdóttir, þá 57 ára gömul.
Í nútímasamfélagi eru fjölmörg tækifæri til þess að framleiða „hina fullkomnu“ útgáfu af sjálfum sér. Í veröld internets og samfélagsmiðla er auðvelt að stilla upp glansmynd af eigin sjálfi, laust við erfiðleika, skömm og – kannski sannleika. En það er líka til fólk sem þorir ekki að lifa eftir sannfæringu sinni og framleiðir ímynd sína alla ævi. Ástæður geta verið margar, skömm, ótti eða jafnvel einhvers konar „tillitssemi“  í garð sinna nánustu. Óttin við að særa og verða öðrum til skammar.

Hannes Óli Ágústsson leikari upplifði aldrei nánd við föður sinn. Í æsku öfundaði hann leikfélagana af sambandi þeirra við feður sína. Hannes vildi bara „venjulegan pabba“ en faðir hans var fjarlægur þrátt fyrir að vera til staðar. Innst inni vissi Hannes að eitthvað var ekki eins og það átti að vera. Dag einn breyttist allt. Pabbi hans lét sig einfaldlega hverfa og varð Anna Margrét Grétarsdóttir, þá 57 ára gömul. Hún tilkynnti eiginkonu sinni til 30 ára og börnum sínum tveimur að hún væri í raun ekki sá sem þau héldu öll þessi ár. Hún var ekki Ágúst Már, heldur Anna Margrét.

 Úr dómum
„Afhjúpandi sýning sem er í senn sorgleg, hjartnæm og bráðfyndin“  -SJ, Fréttablaðið
„Ótrúlega falleg“ – BL Kastljós
„Hvað eftir annað grípur maður beinlínis andann á lofti frammi fyrir kúnst lýsingarinnar“  – MK Víðsjá
„Boðskapur sýningarinnar er bæði skýr og fallegur, þorum að standa með sjálfum okkur og vera sú manneskja sem við erum“  – SBH Mbl.

Aldurshópur 12 ára+
Leikhópur: Trigger Warning
Listrænn stjórnandi: Kara Hergils
Höfundar: Kara Hergils og Halla Þórlaug Óskarsdóttir í samstarfi við leikhópinn
Leikstjóri: Pétur Ármannsson
Leikari: Hannes Óli Ágústsson
Dramatúrg: Andrea Vilhjálmsdóttir
Lýsing: Kjartan Darri Kristjánsson
Leikmynd: Þórdís Erla Zöega


UMMÆLI