Húsasmiðjan færir barnadeild SAk nýtt jólatré
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Húsasmiðjan á Akureyri hefur fært barnadeild Sjúkrahússins á Akureyri nýtt jólatré að gjöf ásamt jólaskrauti og ljósaseríu.
„Gamla tréð hafði þjónað deildinni í mörg ár og var orðið úr sér gengið. Gjöfin kom því á góðum tíma. Við þökkum Húsasmiðjunni kærlega fyrir gjöfina sem gleður börn, fjölskyldur og starfsfólk á deildinni,“ segir í tilkynningu á samfélagsmiðlum Sjúkrahússins á Akureyri.
Tengdar greinar
Uppfært: 26. nóvember 2026





