Fyrir mörgum íslendingum fá jólin ekki að koma fyrr en búið er að gæða sér á kæstri skötu á Þorláksmessu. Það stendur hins vegar ekki alltaf til boða að halda skötuveislu á eigin heimili, sérstaklega ef makar, börn eða meðleigjendur eru viðkvæmir fyrir lyktinni.
Við á Kaffinu höfum því, líkt og fyrri ár, tekið saman þá veitingastaði á Akureyri sem munu bjóða upp á skötuhlaðborð þessa Þorláksmessuna. Hugsanlegt er að lesendur verði við heimkomu látnir skipta um föt úti á svölum af sambýlisfólki sínu, en hvað leggur maður ekki á sig fyrir góða skötu?
Hér fyrir neðan er listi af þeim veitingastöðum sem gefið hafa út að skata verði í boði á Þorláksmessu. Fréttin verður uppfærð eftir því sem upplýsingar berast. Hafa ber í huga að á sumum stöðum gæti þurft að panta borð með fyrirvara og á sumum stöðum gæti verið fullbókað þegar fréttin er lesin.
Bautinn

Skötuhlaðborð Bautans verður allan daginn og fram á kvöld á Þorláksmessu. Borðapantanir eru í síma (462-1818) eða tölvupósti (bautinn@bautinn.is).
Strikið

Skötuhlaðborð verður á Strikinu í hádeginu á Þorláksmessu, frá 11:30 til 14:00. Hægt er að bóka borð á strikid.is.
Greifinn

Skötuhlaðborð verður á Greifanum í hádeginu á Þorláksmessu frá 11:30 til 14:00 (Eða lengur ef aðsókn er mikil.) Fyrir þá sem ekki vilja kæsta skötu verður saltfiskur og fleira á boðstólum. Borðapantanir eru á Greifinn.is. Einnig er hægt að mæta á staðinn en þá gæti þurft að bíða eftir borði.
Múlaberg & LYST
Skötuhlaðborð eru bæði á Múlabergi og LYST í Lystigarðinum (Þar sem boðið er upp á ferska skötu, ekki kæsta), en þegar þessi frétt er skrifuð er nú þegar uppselt á báðum stöðum.


COMMENTS