Ingvar Már Gíslason nýr formaður KA

Ný aðalstjórn KA sem var skipuð á fundinum. Mynd: ka.is.

Aðalfundur KA fór fram í gær og þar var Ingvar Már Gíslason kjörinn nýr formaður félagsins. Áður var það Hrefna G. Torfadóttir sem var formaður KA en hún hefur nú látið af störfum. Ingvar hefur undanfarin ár gegnt hlutverki varaformanns félagsins en tekur nú við forystuhlutverkinu en eins og kemur fram í tilkynningu frá félaginu þá er mikil ánægja með skipan Ingvars. ,,Á sama tíma þökkum við Hrefnu kærlega fyrir hennar störf en hún hefur verið formaður frá árinu 2010,“ segir jafnframt í tilkynningunni. Hrefna gaf út kveðju vegna þessa sem hægt er að lesa hér. 

Gunnar Níelsson hætti einnig í aðalstjórn og í stað þeirra Gunnars og Hrefnu komu nýir inn í aðalstjórn, þeir Eiríkur S. Jóhannsson og Pétur Ólafsson. Aðalstjórn KA er því skipuð eftirfarandi:

Ingvar Már Gíslason, formaður
Eiríkur S. Jóhannsson, varaformaður
Sigríður Jóhannsdóttir, gjaldkeri
Helga Þyri Bragadóttir, ritari
Pétur Ólafsson, meðstjórnandi

Ingvar þakkaði traustið á fundinum og sagði að framundan væru spennandi tímar í félaginu. KA væri orðið langfjölmennasta félag bæjarins og nú væri komið að uppbyggingartímum á félagssvæði KA. Við tækju samningaviðræður við Akureyrarbæ um uppbyggingu mannvirkja hér á svæðinu og er framtíðarnefnd félagsins búin að skila af sér ákveðnum hugmyndum um framtíð félagsins.

Sambíó

UMMÆLI