Innvortis koma saman í fyrsta sinn síðan árið 2007
Eftir María Hjelm·

Fyrstu tónleikar húsvísku hljómsveitarinnar Innvortis síðan árið 2007 fóru fram á Húsavík Öl í gær. Þetta kemur fram á vef Húsavík.com.
Þar segir að röð inn á tónleikana hafi talið fleiri tugi metra löngu áður en húsið opnaði. Árni Þór Theódórsson spilaði á bassa, en upprunalegur bassaleikari sveitarinnar var Brynjúlfur Sigurðsson og aðrir meðlimir sveitarinnar eru Arngrímur Arnarson, Björgvin Sigurðsson og Snæbjörn Ragnarsson.
Hljómsveitin spilar á Húsavík Öl aftur í kvöld, föstudag klukkan 21.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










