Prenthaus

Jakob Frímann leiðir lista Flokks fólksins í NorðausturkjördæmiMynd: flokkurfolksins.is

Jakob Frímann leiðir lista Flokks fólksins í Norðausturkjördæmi

Tónlistarmaðurinn, Jakob Frímann Magnússon, leiðir lista Flokks fólksins í Norðausturkjördæmi í komandi alþingiskosningum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá flokknum.

Jakob Frímann er landskunnugur tónlistarmaður og er meðal annars stofnandi Stuðmanna. Hann hefur einnig verið virkur í stjórnmálaunum en hann var varaþingmaður Samfylkingarinnar og settist á þing um tíma undir lok árs 2004. Hann var oddviti fyrir Íslandshreyfinguna í kosningum 2007 en flokkurinn fékk engan þingmann kjörinn og rann að lokum inn í Samfylkinguna árið 2009.

“Ég hef hrifist af stefnumálum Flokks fólksins þar sem áhersla er lögð á að útrýma fátækt og óréttlæti á Íslandi. Það er sjálfsögð krafa að allir fái lifað mannsæmandi lífi í einu af auðugustu samfélögum heims. Hér á enginn að búa við bág kjör að afloknu ævistarfi, hlúa þarf betur að þeim sem hafa lent í áföllum eða búa við skerta orku og allir eiga að njóta jafnra tækifæra til menntunar og tómstundastarfs. Alvöru velferðarsamfélag byggist á heilbrigðu samhengi milli verðmætasköpunar og mannúðar,“ er haft eftir Jakobi í tilkynningu frá flokknum.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó