Jólaævintýri í Hafnarstræti 88Mynd: Brynja Harðardóttir Tveiten

Jólaævintýri í Hafnarstræti 88

Í gær á fyrsta degi aðventu hófst glyggasýningin Jólaglugginn í vinnustofu Brynju Harðardóttur Tveiten. Sýningin er aðgengileg allan sólarhringinn, enda notið utan frá séð, og hentar jólabörnum á öllum aldri. Sýningin stendur til 6. janúar.

Litið er inn á heimili frá fyrri hluta síðustu aldar. Heimilisfólkið er gengið til náða og töfrar jólanna færast hljóðlega yfir bæinn. Stjörnubjartur himinn lýsir upp umhverfið, glansandi rauð epli bíða í skál, nýsteikt laufabrauð og hangikjötsflís hvíla á diski og sofandi kisur á sæng. Búið er að skreyta m.a. með litríkum músastigum og heimagerðu jólatré.

Glugginn í Hafnarstræti 88 er hugverk systranna Brynju Harðardóttur Tveiten myndlistarkonu og Áslaugar Harðardóttur Tveiten sem rekur skrautmunasöluna Fröken Blómfríður. Glugginn tengist líðandi stundu hverju sinni og er tilvalinn áfangastaður í gönguferðum og vettvangsferðum. Hann hefur þann tilgang að lífga upp á umhverfið, hvetja vegfarendur til að staldra við í amstri  dagsins og skapa gleði, hlýju og nánd.

COMMENTS