Kælismiðjan Frost landar milljarðasamningi í RússlandiFrá undirritun samningsins. Mynd: bb.is.

Kælismiðjan Frost landar milljarðasamningi í Rússlandi

Tæknifyrirtækin Skaginn 3X og Kælismiðjan Frost hafa landað samningi um hönnun, uppsetningu og innleiðingu á hátækni vinnslu- og kælibúnaði í risavaxinn frysti- og vinnslutogara fyrir rússneska útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið Collective Farm Fishery by V.I. Lenin (RK Lenina). Bæjarins besta á Vestfjörðum greinir frá þessu.

Verðmæti samningsins hleypur á milljörðum íslenskra króna og er gerður í samvinnu við rússneska fyrirtækið Nautic Knarr Maritime, sem er sameiginlegt markaðsfyrirtæki fyrirtækjanna Skagans 3X, Frosts, Brimrúnar, Naust Marine og verkfræðistofunnar Skipatækni.

Áætlað er að skipið, sem er í smíðum í Yantar-skipasmíðastöðinni í Kalíníngrad, verði fullbúið og tilbúið til afhendingar í árslok 2022. Skipið er það stærsta sinnar tegundar í Rússlandi í 30 ár og framleiðslugetan um borð er 50% meiri en í öðrum sambærilegum rússneskum skipum. Framleiðslugeta togarans verður allt að 450 tonn á dag og frystilestarnar rúma 5100 tonn.

Verkefnið er liður í stefnu rússneskra stjórnvalda um að renna styrkari stoðum undir sjávarútveg landsins, tryggja sjálfbærni veiða og mataröryggi með því að hvetja til nútímavæðingar greinarinnar.
Heildarlausnir Frosts samanstanda af umhverfisvænu frystikerfi, sem mun sjá um frystingu á sex sjálfvirkum frystiskápum frá Skaganum 3X.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó