Nú styttist í Söngvakeppni Sjónvarpsins en í hádeginu í dag birti RÚV ansi sérstaka mynd á Facebook-síðu keppninnar.
Ætla má að búið sé að gera samsetta mynd af öllum þeim keppendum sem munu taka þátt í ár en á myndinni er borin upp spurningin: Hverjir taka þátt í Söngvakeppninni 2017?
Keppendurnir verða svo kynntir til leiks í þætti í Sjónvarpinu föstudagskvöldið 20. janúar klukkan 19:40. Lokakeppni Eurovison fer svo fram í Kiev í Úkraínu þann 13. maí.
![Getur þú séð hvaða fólk þetta er?](http://www.kaffid.is/wp-content/uploads/2017/01/a.aa_.-kepp-400x538.jpg)
Getur þú séð hvaða fólk þetta er?
UMMÆLI