Kraftur og Akureyringar perla ný armbönd í íslensku fánalitunum á sunnudaginn

Armböndin eru í íslensku fánalitunum og eru einnig ætluð til að sýna samstöðu með íslenska fótboltaliðinu á HM.

Sunnudaginn 6. maí milli 13 og 17 verður Kraftur með perluviðburð í Íþróttahöllinni Akureyri og eru allir Akureyringar hvattir til að koma og leggja hönd á plóg.

Nýverið fór Kraftur til Vestmannaeyja og perlaði með Eyjamönnum og ÍBV, þar sem öll eyjan sýndi stuðning í verki og perlaði með Krafti. Samtals voru 1538 armbönd perluð og eftir viðburðinn skoruðu Eyjamenn á Akureyringa og íþróttafélögin þar að ná af þeim perlubikarnum.

Nú er um að gera að taka höndum saman og mæta í Íþróttahöllina á sunnudaginn og perla armbönd til styrktar Krafti. Armböndin eru í íslensku fánalitunum og sýna einnig samstöðu með íslenska fótboltaliðinu á HM. Armböndin eru með áletruninni „Lífið er núna“ og eru auðveld í samsetningu svo að allir geta tekið þátt, börn sem fullorðnir.

Eyjamenn skora á Akureyringa að gera betur
Sem stendur er Perlubikarinn í höndum Eyjamanna en nú geta Akureyringar náð honum af þeim en Perlubikarinn hljóta þeir viðburðarhaldarar sem að ná að perla sem flest armbönd.

Kraftur hvetjur alla Akureyringa, sem og leikmenn og stuðningsmenn allra íþróttafélaganna, að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni. Öll armböndin eru perluð í sjálfboðavinnu og því mikil hugsjón bakvið hvert armband. Allur ágóði af sölu armbandanna rennur til Krafts – stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur og er hægt að kaupa armböndin líka strax á staðnum.

Það verður að sjálfsögðu heitt á könnunni og hlakka forráðamenn Krafts til að sjá sem flesta í Íþróttahöllinni við Skólastíg, gengið inn suðurmegin.

Hægt er að sjá nánari um viðburðinn og skrá sig á hann hér.

UMMÆLI