Leikfélag VMA setur upp „Með allt á hreinu“

Leiksýning vetrarins hjá Leikfélagi VMA verður söngleikurinn Með allt á hreinu sem byggir á samnefndri kvikmynd sem var frumsýnd árið 1982. Á vef VMA kemur fram að áætluð frumsýning sé þann 19. febrúar 2027 í Gryfjunni í VMA.
Ásta Ólöf Jónsdóttir formaður Leikfélags VMA segist vera mjög spennt fyrir þessu verkefni. Hún segist hafa séð uppfærslu nemenda Framhaldsskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki árið 2024 á verkinu og hafi heillast af því.
Þann 2. desember næstkomandi geti allir áhugasamir komið í leikprufur og í kjölfarið verði skipað í hlutverk. Leikarar fái handrit í hendur fyrir jólafrí og síðan hefjist æfingar á fullu strax eftir áramót. Ásta Ólöf hvetur nemendur til þess að koma í prufur og einnig að láta vita af áhuga á að taka þátt í uppfærslunni.
Ásta Ólöf er á öðru ári í VMA og byrjaði að leika á fyrsta námsári sínu þegar hún lék Ronju ræningjadóttur í samnefndri uppfærslu Leikfélags VMA í febrúar 2026.
Kolbrún Lilja Guðnadóttir hefur verið ráðin leikstjóri Með allt á hreinu. Hún stýrði uppfærslu leikfélagsins á Tröll árið 2020 í Menningarhúsinu Hofi. Núna starfar Kolbrún Lilja m.a. sem kennari við sviðslistabraut MA. Af öðrum leiksýningum sem hún hefur leikstýrt má nefna Fólkið í blokkinni hjá Freyvangsleikhúsinu árið 2023 og Bróðir minn ljónshjarta hjá Leikfélag Hörgdæla árið 2024.
Tengdar greinar
Uppfært: 20. október 2026










