Leitin að Grenndargralinu hættir í grunnskólum í haust


Vegna breytinga á fyrirkomulagi valgreina í grunnskólum Akureyrar mun Leitin að Grenndargralinu ekki verða í boði fyrir grunnskólanemendur haustið 2018. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Grenndargralinu.

Upphaf Leitarinnar að Grenndargralinu má rekja aftur til ársins 2008 þegar fyrst var leitað að Gralinu. Leitin hefur verið í boði fyrir grunnskólanemendur á Akureyri í áratug, samtals 10 skipti, með þátttöku sjö skóla.

,,Fyrir hönd Grenndargralsins þakka ég samstarf við hina ýmsu aðila í gegnum árin, ekki síst alla þá skemmtilegu krakka sem leitað hafa Gralsins í heimabyggð,“ segir Brynjar Karl Óttarsson, stofnandi Grenndargralsins.

Grenndargralið mun áfram fjalla um sögu og menningu heimabyggðar á lifandi og skemmtilegan hátt fyrir alla áhugasama, jafnt unga sem aldna.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó