MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Lífið er konsert

Eftir Ingólfur Stefánsson·
karlakor
kaffid.is

Karlakór Eyjafjarðar fagnar 30 ára afmæli sínu með stórtónleikunum í Hofi á Akureyri á morgun, laugardaginn 24. október klukkan 16:00. Þar verður léttleiki í lagavali og flutningi í fyrirrúmi.

Á efnisskránni verða lög sem fólk þekkir í flutningi ýmissa vinsælla hljómsveita eins og t.d. Gautar, Ingimar Eydal, Skriðjöklarnir, Greifarnir, Baraflokkurinn, Póló og Bjarki og Magnús Eiríksson. Einnig verða flutt lög eftir Óðinn Valdimarsson, Bjarna Hafþór og Eirík Bóasson. Þá verða einnig flutt sígild kórlög eins og t.d. úr Vesalingunum.

Guðlaugur Viktorsson stjórnar kórnum, Daníel Þorsteinsson verður hljómsveitarstjóri stórhljómsveitar. Snorri Snorrason og fleiri munu syngja einsöng í völdum lögum.

Miðasala fer fram á Menningarfelag.is

Tengdar greinar

Uppfært: 29. október 2026