Listagilið lokað á morgun fyrir bílaumferð

Listagilið lokað á morgun fyrir bílaumferð

Á morgun, laugardaginn 3. nóvember, verður svokallaður Gildagur í Listagilinu frá kl. 14-17. Að þeim sökum er stærstur hluti Kaupvangsstrætis lokaður fyrir bílaumferð á sama tíma.

Búast má við hálfgerðri karnivalstemningu í Listagilinu með opnunum sýninga víðsvegar um Listagilið. Þar sem ber hæst opnun í Listasafninu á yfirlitssýningu á verkum Arnar Inga Gíslasonar sem lést á síðasta ári. Einnig verða opnar vinnustofur í götunni, verslanir verða með tilboð, boðið upp á lifandi tónlist í Listasafninu og margt fleira.

Sambíó

UMMÆLI