Þriðjudaginn 25. nóvember næskomandi fer fram ljósaganga í tilefni 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi.
Í ár er sjónum beint að stafrænu ofbeldi gegn konum og stúlkum.
Gengið verður frá Ráðhústorginu að Amtsbókasafninu og hefst gangan kl 16:30.
Erindi dagsins flytur Hjalti Ómar Ágústsson, sérfræðingur hjá Jafnréttisstofu.
Að göngunni standa Sóroptimistaklúbbur Akureyrar, Femínistafélag MA, Zontaklúbbur Akureyrar og Zontaklúbburinn Þórunn hyrna.
Við hvetjum ykkur öll til þess að mæta og ganga saman gegn ofbeldi.
Viðburðinn má finna á facebook – https://fb.me/e/7hx5yWn4q


COMMENTS