Ljósin tendruð á jólatrénu 21. nóvember

Ljósin á jólatrénu á Ráðhústorgi á Akureyri verða tendruð laugardaginn 21. nóvember næstkomandi klukkan 16. Jólatorgið á Ráðhústorgi opnar klukkan 15 sama dag. Þar verða níu jólahús þar sem söluaðilar munu bjóða upp á fjölbreyttan og skemmtilegan varning sem tengist jólunum.
Í tilefni dagsins verður boðið upp á hátíðlega dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Lúðrasveit Akureyrar leikur jólalög, jólasveinar mæta að sjálfsögðu á svæðið og Maddamma úr Skilaboðaskjóðunni, Hans og Gréta, Jóla-Lóla, Krýla og Vettlingur kíkja í heimsókn.
Berglind Ósk Guðmundsdóttir bæjarstjóri og sendiherra Danmerkur taka þátt í hátíðinni. Salka Einarsdóttir, fjögurra ára, fær það skemmtilega hlutverk að tendra ljósin á jólatrénu. Að lokum syngja barnakórar Akureyrarkirkju undir stjórn Guðnýjar Ölmu Haraldsdóttur.
Dagskrá við tendrun trésins lýkur fyrir klukkan 17 en Jólatorgið verður opið til klukkan 18.
Jólatorgið verður síðan opið allar helgar fram að jólum, á laugardögum klukkan 14 til 18 og sunnudögum klukkan 14 til 17.
Nánari upplýsingar um Jólatorgið má finna á jolatorg.is.
Tengdar greinar
Uppfært: 10. nóvember 2026










