Ljósmæður á SAk draga uppsagnir til baka

Ljósmæður á SAk draga uppsagnir til baka

Tvær ljósmæður sögðu starfi sínu lausu við sjúkrahúsið á Akureyri vegna kjaradeilu ljósmæðra við ríkið. Þær hafa nú dregið uppsagnir sínar til baka en þetta kemur fram í pistli Bjarna Jónassonar forstjóra SAk.

„Það er mikill léttir að sátt hefur náðst í kjaradeilu ljósmæðra og ríkisins. Fæðingarþjónusta og þjónusta við þungaðar konur færist vonandi í fyrra horf sem fyrst. Ekki varð mikil röskun á starfseminni hér vegna yfirvinnubannsins en sækja þurfti um undanþágur til að tryggja viðeigandi mönnun meðan á því stóð. Tvær ljósmæður sögðu starfi sínu lausu vegna kjaradeilunnar en hafa nú dregið uppsagnir sínar til baka.“ skrifar Bjarni Jónasson í pistlinum sem lesa má hér á heimasíðu SAk.

 

Sambíó

UMMÆLI