MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Ljósskúlptúrar í Deiglunni

Eftir Ritstjórn·
ZenisekH_IG_worksample8_TransienceandTransformation
kaffid.is

Listamaðurinn Heidi Jean Zenisek mun sýna listaverk sín helgina 24. júlí – 26. júlí í Deiglunni, þar sem hún hefur í listamannadvöl hjá Gilfélaginu síðastliðinn mánuð. Heidi kemur frá Bandaríkjunum, nánar tiltekið Solon, Iowa, en hefur síðustu ár búið í Greensboro í Norður-Karólínu þar sem hún hefur verið að kenna skúlptúrgerð við The University of North Carolina. Hún útskrifaðist með MFA-gráðu frá The University of Maryland í Washington D.C. og MA-gráðu frá Eastern Illinois University.

Þetta er ekki fyrsta skipti sem hún sýnir verk sín hér á landi því hún hefur verið nær árlegur gestur síðan árið 2016. Þá hefur hún sýnt verk í Verksmiðjunni á Djúpavík, gert verk fyrir Vetrarhátíð Reykjavíkur og ljósahátíð NES – Lightup! á Skagaströnd, þar sem verk hennar var í sýningu við sundlaugina í þrjú ár. Ásamt því kenndi hún vinnustofu á Lungahátíðinni á Seyðisfirði þar sem hún tók einnig þátt í ljósahátíðinni List í ljósi.

Í verkum Heidi einbeitir hún sér að umhverfi, ljósi, meðvitund og hugtakinu „heimili.“ Sýning hennar um helgina ber heitið Entanglement of Light/Flækjustig ljóss þar sem hún vekur spurningar um það hvernig við skynjum ljós og umhverfið í kringum okkur.

Sýningin verður opin föstudag 17:00-22:00 þar sem opnunarmóttaka verður klukkan 20:00. Laugardag og Sunnudag verður opið milli 13:00-17:00.

Hlekkur að vefsíðu: Heidizenisek.com

Verksmiðjan á Djúpavík
Verksmiðjan á Djúpavík
Ljósakróna
Ljósakróna
Sundlaugin á Skagaströnd
Sundlaugin á Skagaströnd
Sundlaugin á Skagaströnd
Sundlaugin á Skagaströnd

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026