Prenthaus

Löggan í Twitter-maraþon

Lögreglan er á Twitter

Lögreglan er á Twitter

Á föstudaginn kemur, 16.desember, fer fram Twitter-maraþon lögreglunnar, svokallað Löggutíst. Í löggutístinu munu Lögreglan á Norðurlandi eystra, Lögreglan á Suðurnesjum og Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu nota samfélagsmiðilinn Twitter til að segja frá öllum verkefnum sem koma á borð þessarra lögregluliða frá því kl.16 til kl.04 á laugardagsmorguninn. Tilgangur viðburðarins er að gefa almenningi innsýn í störf lögreglu með því að fylgjast með útköllum sem henni berast, fjölda þeirra og hversu margvísleg þau eru.

Á meðan viðburðinum stendur munu embættin nota #-merkið #löggutíst til að merkja skilaboðin.

Lögreglan á Norðurlandi eystra mun tísta frá sínum notaendaaðgangi: @logreglanNE – Það má einnig sjá hér www.twitter.com/logreglanNE
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun tísta frá sínum notaendaaðgangi: @logreglan – eða á www.twitter.com/logreglan
Lögreglan á Suðurnesjum mun tísta frá sínum notaendaaðgangi: @sudurnespolice – eða á www.twitter.com/sudurnespolice

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó