Lögreglan auglýsir eftir vitnum að líkamsárás

Lögreglan auglýsir eftir vitnum að líkamsárás

Lögreglan á Norðurlandi eystra óskar eftir vitnum að líkamsárás sem átti sér stað fyrir utan veitingastaðinn R5 bar við Ráðhústorg 5 á Akureyri þann 19. janúar sl. Árásin átti sér stað um klukkan 01:30 aðfaranótt sunnudags.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni í dag. Nokkrir aðilar veittust þarna að tveimur mönnum og stóð árásin yfir í nokkrar mínútur.
Þeir sem urðu vitni að líkamsárásinni eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna á Norðurlandi eystra í síma 444-2800 eða senda einkaskilaboð á fésbókarsíðu embættisins.

UMMÆLI