![Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu](http://www.kaffid.is/wp-content/uploads/2016/11/a.aaaalogg-400x266.jpg)
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Eins og flestum ætti að vera kunnugt um er hinn svokallaði Black Friday í dag en á þeim degi veita verslanir mikinn afslátt af vörum og fólk flykkist í verslanir til að gera góð kaup. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tekur að sjálfsögðu þátt í deginum en á Á Facebooksíðu lögreglunnar var sett inn bráðskemmtileg færsla í morgun.
Í færslunni segir að í tilefni dagsins sé 25% afsláttur af sektum ef greitt er innan 30 daga. Þetta er að sjálfsögðu í gríni gert en eins og flestir vita þá gildir þetta tilboð allt árið um kring.
![Færslan skemmtilega](http://www.kaffid.is/wp-content/uploads/2016/11/Screen-Shot-2016-11-25-at-12.41.43-400x184.png)
Færslan skemmtilega
UMMÆLI